Bílaumferð bönnuð á næturlífssvæðum

Göturnar sem um ræðir eru allar staðsettar á líflegum svæðum …
Göturnar sem um ræðir eru allar staðsettar á líflegum svæðum borgarinnar sem skilgreind eru sem næturlífssvæði. AFP/Ólafur Steinar Gestsson

Bílaumferð á þröngum götum Kaupmannahafnar, þar sem næturlíf er alla jafna mikiðverður bönnuð frá og með 1. júní næstkomandi. Er þetta gert til að berjast gegn ónæði á nóttunni, samkvæmt lögreglunni í Kaupmannahöfn.

Göturnar sem um ræðir eru allar staðsettar á líflegum svæðum borgarinnar sem skilgreind eru sem „næturlífssvæði“. Lögreglan mun fylgjast grannt með umferð frá miðnætti til fimm á morgnana og geta ökumenn átt von á rúmlega 60.000 kr. sekt eða því sem nemur 3.000 danskra króna. 

Ástæða takmarkananna er að sögn Tommy Laursen, lögreglustjóra í Kaupmannahöfn, ónæði af bílum sem fara í gegnum næturlífssvæðin. Dæmi eru um að hópar séu að mynda bílalestir og keyra í gegnum göturnar með tónlistina í botni, öskrandi á vegfarendur, sem skapar almennt óöryggi, ásamt því að umferðaraðstæður verða beinlínis hættulegar. 

Að lokum tekur Tommy fram að með því að banna bílaumferð sé markmiðið að koma í veg fyrir óöryggið og hættuna sem þetta skapar. 

Takmarkanirnar munu þó ekki hafa áhrif á þá íbúa sem búa við göturnar, leigubíla eða aðra nauðsynlega flutninga eins og sorphirðu-, sjúkra- eða sendibíla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert