Dresden-þjófar sakfelldir í umfangsmiklu máli

Lögreglumaður sést hér fylgja einum sakborninga, sem hylur andlit sitt, …
Lögreglumaður sést hér fylgja einum sakborninga, sem hylur andlit sitt, inn í réttarsal í Dresden í dag. AFP

Þýskur dómstóll hefur sakfellt fimm karlmenn fyrir sérlega ósvífinn skartgripaþjófnað á ríkislistasafninu í borginni Dresden árið 2019. 

Skartgripirnir sem þjófarnir stálu eru metnir á um 113 milljónir evra, eða sem jafngildir um 17 milljörðum kr. 

Einn af gripunum sem þjófarnir höfðu á brott með sér …
Einn af gripunum sem þjófarnir höfðu á brott með sér úr safninu. AFP

Lögreglunni hefur tekist að endurheimta megnið af gripunum, þar á meðal demantaskreytt sverð (mynd af því má sjá hér neðar í fréttinni), en óttast er að hluti þýfisins muni aldrei koma í leitirnar.

Fimmmenningarinnar tengjast allir alræmdri glæpafjölskyldu, að því er segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Þeir eiga 4-6 ára fangelsisdóma yfir höfði sér. 

Þjófnaðurinn var þaulskipulagður og heimsóttu mennirnir, sem eru allir búsettir í Berlín, safnið nokkrum sinnum áður en þeir létu loks til skarar skríða. Þeir notuðu m.a. sérstaka sög til að saga í gegnum þykka rimla sem eru fyrir gluggum safnsins. Þeir gengu þó vel frá eftir sig og límdu þá aftur saman þegar þeir voru komnir í gegn. 

Sakborningarnir í réttarsal ásamt verjendum sínum.
Sakborningarnir í réttarsal ásamt verjendum sínum. AFP

Snemma morguns 25. nóvember 2019 slógu þeir út rafmagni í nágrenni safnsins á meðan tveir þeirra brutust inn. 

Myndefni úr eftirlitsmyndavélum sýna grímuklædda þjófana með axir er þeir ganga um skreyttan sal sem kallast Græna hvelfingin. Þar brutu þeir glerskáp sem geymdi verðmætin. 

Rannsókn málsins stóð yfir í eitt ár áður en lögreglan hafði loks hendur í hári mannanna. 

Þetta forláta demantsskreytta sverð var tekið úr hirslum safnsins.
Þetta forláta demantsskreytta sverð var tekið úr hirslum safnsins. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert