Farangur týnist eða skemmist sem aldrei fyrr

Hvar er farangurinn?!
Hvar er farangurinn?! AFP

Hlutfall farangurs sem týnist, skemmist eða tefst á ferðalögum nær tvöfaldaðist að umfangi á síðastliðnu ári þegar ferðaþjónustan tók aftur kipp í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Á sama tíma var talsvert um manneklu í þessum geira.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem var unnin af fyrirtækinu SITA, sem liðsinnir fyrirtækjum í ferðaþjónustu.

Í skýrslu SITA segir að 7,6 ferðatöskur á hverja 1.000 farþega hafi ekki ratað rétta leið eða skemmst árið 2022. Árið áður var hlutfallið 4,35 töskur á hverja þúsund farþega. 

SITA segir að undanfarinn áratug hafi hlutfallið farið lækkandi en svo tekið þennan mikla kipp í fyrra. 

26 milljón töskur rötuðu ekki rétta leið

Þegar allt er talið saman þá rötuðu 26 milljónir ferðataska ekki rétta leið eða skemmdust árið 2022. Þær voru 9,9 milljónir talsins árið áður, en tekið skal fram að fjöldi flugfarþega komst að mestu aftur í eðlilegt horf í fyrra eftir kórónuveirufaraldurinn.

David Lavorel, framkvæmdastjóri SITA, bendir á að á milli áranna 2007 og 2021 hafi hlutfall glataðs farangurs helmingast. Það sé því afar bagalegt að sjá þessar tölur taka flugið.

Hann segir að fyrirtæki í ferðaþjónustu verði að tryggja það að farþegar geti treyst því að innrita sinn farangur með hefðbundnum hætti og að hann skili sér í réttar hendur. 

Ferðaþjónustan og millilandaflug hefur tekið við sér eftir kórónuveirufaraldurinn. Víða …
Ferðaþjónustan og millilandaflug hefur tekið við sér eftir kórónuveirufaraldurinn. Víða hafa flugfélög og flugvellir þó átt í vanda sökum skorts á vinnuafli, og það getur m.a. haft áhrif á hvort farangur rati sína réttu leið eður ei. AFP

Heildarfjöldi flugfarþega í fyrra var 3,42 milljarðar. Á sama tíma var víða talsverð mannekla hjá flugvöllum og flugfélögum eftir að fyrirtækin urðu að skera niður í sínum rekstri vegna Covid-19.

Árið 2019 fór heildarfjöldi flugfarþega upp í 4,5 milljarða. En þá týndust, töfðust eða skemmdust aðeins 5,6 töskur á hverja þúsund farþega. 

SITA byggir rannsókn sína á gögnum úr hugbúnaði sem fylgist sérstaklega með ferðum farangurs. Þessi hugbúnaður er notaður á um 2.400 flugvöllum víða um heim. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert