Íbúum Noregs fjölgaði um 15.300 á fyrsta fjórðungi ársins 2023 og náðu þar með 5,5 milljónum en hér er um að ræða mestu fjölgun landsmanna síðan á fyrsta fjórðungi ársins 2012. Hefur frjósemi norskrar þjóðar þó ekki verið minni frá því manntal hófst.
Nýir íbúar frá Úkraínu bera þessa öru fjölgun í Noregi uppi, á þetta bendir Magnus Haug, ráðgjafi hjá norsku hagstofunni SSB en svokallaður nettóinnflutningur, það er að segja aðflutningur fólks að frádregnum brottfluttum, hefur ekki verið meiri í Noregi síðan SSB tók að birta tölfræði þar um árið 1997.
Hinn tölfræðiþátturinn sem mestu ræður um fólksfjölda, fjöldi fæddra og látinna, ber ekki með sér öra fjölgun þjóðarinnar, öðru nær. Á fyrsta fjórðungi ársins fæddust 760 börn í Noregi umfram þá sem söfnuðust til feðra sinna. Svo lága tölu hafa talnaspekingar SSB aldrei séð hjá stofunni.
Allar götur síðan 2009 hafa Norðmenn verið að geta af sér færri afkvæmi með hverju árinu, þó með einni undantekningu sem var árið 2021. Í fyrra eignuðust konur í Noregi að meðaltali 1,41 barn sem taldist veruleg fækkun frá 1,55 börnum árið áður. Í heildina fæddust 51.500 börn í Noregi í fyrra, heilum 4.500 færri en árið áður og 1.500 færri en árið þar á undan, 2020.
Í Nordland-fylki fjölgaði íbúum um 787 og voru 241.871 við lok fyrsta fjórðungs en fólksfækkun í norðurfylkjum Noregs hefur verið töluvert í umræðunni síðasta áratuginn. Þakka íbúar þar þetta 1.143 úkraínskum flóttamönnum sem eru nýir íbúar Nordland en alls hafa um 40.000 flóttamenn frá Úkraínu komið til landsins.
„Þetta eru mjög góðar fréttir, allir eru hjartanlega velkomnir. Við þurfum fleiri íbúa og við munum halda áfram að kynna hve gott er að búa og lifa hér í Nordland,“ segir Elin Dahlseng Eide fylkisráðsformaður í samtali við norska ríkisúrvarpið NRK.
Bendir hún á að með flóttamannastraumnum hafi nemendum í framhaldsskólum fylkisins fjölgað um 200 en þar eru nýir nemendur teknir inn strax og þeir koma, óháð því hvenær skólaársins er, svo þeir falli sem fyrst inn í nýtt samfélag og ný heimkynni. Verr líst formanninum á frjósemistölur.
„Fólk verður að eignast fleiri börn rétt og slétt. Við erum háð því að fólk fjölgi sér og við erum háð því að unga fólkið sé hérna eða komi aftur heim,“ segir hún. Lødingen er það sveitarfélag sem sá hve mesta fólksfjölgun á ársfjórðungnum, þeim fjölgaði um 27 en þangað fluttu líka rúmlega hundrað innflytjendur sem sýnir einnig hve margir fluttu brott.