Stofna bandalag sem veita á Úkraínu hergögn

Rutte og Sunak takast í hendur.
Rutte og Sunak takast í hendur. AFP/Alastair Grant

Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands og Mark Rutte forsætisráðherra Hollands hétu því í dag að koma á fót alþjóðlegu bandalagi sem styðja á við Úkraínu í stríðinu gegn Rússum, m.a. með hergögnum á borð við orrustuþotur, og þjálfun.

„Forsætisráðherrann og Rutte forsætisráðherra hafa komist að samkomulagi um að koma á fót alþjóðlegu bandalagi sem veita á Úkraínumönnum hergögn sem gera þeim kleift að berjast í lofti, stuðning sem felur í sér allt frá þjálfun yfir í að útvega þeim F16-orrustuþotur,“ er haft eftir talsmanni Sunaks í yfirlýsingu Downing-strætis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert