Loftárás var gerð á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Varnarmálayfirvöld sögðu að um einstaklega margslungna árás væri að ræða.
Að minnsta kosti þrír særðust í árásinni sem samanstóð bæði af eldflaugum og drónum.
Loftvarnarsírenur byrjuðu að hljóma um hálf þrjú í nótt að staðartíma og hljómuðu í tvær klukkustundir. Um er að ræða áttundu loftárásina á Kænugarð í þessum mánuði.
Hershöfðinginn Valerí Zaluzhní sagði að árás Rússa hefði verið gerð úr norðri, suðri og austri og að 18 eldflaugum hafi verið skotið á borgina. Loftvarnarkerfi Úkraínumanna skaut allar eldflaugarnar niður að hans sögn.
Serhí Popko, hershöfðingi í Kænugarði, lýsti árásinni sem „hámarksfjölda eldflaugaárása á sem skemmstum tíma“.
Íbúar borgarinnar voru beðnir um að halda sig fjarri gluggum á meðan brak úr eldflaugum Rússa hrapaði niður á jörðu.
Vítalí Klitschko borgarstjóri sagði að brak hefði fallið í hverfi í miðbænum, þar á meðal í dýragarði borgarinnar. Mesta eyðileggingin varð í Solomíanskí-hverfi þar sem alþjóðlegi flugvöllur borgarinnar er staðsettur.