Lögreglan á Nýja-Sjálandi rannsakar eldsvoðann í farfuglaheimili í Wellington, höfuðborg Nýja-Sjálands, sem íkveikju. Að minnsta kosti sex létust í eldsvoðanum.
Eldur kviknaði í fjögurra hæða farfuglaheimilinu Loafers Lodge í miðborg Wellington aðfaranótt þriðjudags.
Slökkvilið bjargaði tugum manna úr byggingunni en efsta hæðin var alelda þegar slökkvilið mætti á vettvang.
Lík þeirra sex sem létust eru enn inn í byggingunni, þá er 20 manns enn saknað.
„Ég get staðfest að við rannsökum málið sem íkveikju,“ sagði Dion Bennett lögreglustjóri við blaðamenn. Þá sagði hann að málið væri rannsakað sem morð.
Lögreglan er með lista yfir fólk sem hún vill ræða við, en enginn hefur verið handtekinn.