G7-ríkin segjast fagna stofnun tjónaskráar Evrópuráðsins. Tjónaskráin var stofnsett í Hörpu á miðvikudaginn.
Þjóðarleiðtogar G7-ríkjanna, sjö helstu iðnríkja heimsins, funda nú í Hiroshima í Japan. Í dag gáfu þeir út sameiginlega yfirlýsingu varðandi Úkraínustríðið.
Þar segir meðal annars að ríkin ætli sér að halda áfram að vinna að því að Rússar borgi fyrir langtímauppbyggingu í Úkraínu sökum innrásar Rússa.
„Í þessu samhengi fögnum við stofnun Evrópuráðsins á tjónaskrá eyðileggingar í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu, til að koma til móts við beiðni allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna,“ segir í yfirlýsingunni.
G7-ríkin tilkynntum um nýjar refsiaðgerðir gegn Rússum í dag. Meðal annars er þeim beint gegn demantaviðskiptum Rússa sem tengjast innrás þeirra í Úkraínu.