Forsætisráðherra Írlands segist hafa átt gott samtal við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um stöðu hvalveiða á Íslandi er hann var staddur hérlendis vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins.
Á vef hins írska Independent segist forsætisráðherrann Leo Varadkar vilja að hvalveiðum verði hætt. Hann og Katrín hafi átt góðar samræður um málið en bornar hafi verið upp niðurstöður rannsóknar MAST um langdregna aflífun hvala við Íslandsstrendur.
„Örlítið eins og Írar þá líkar Íslendingum ekki við það að vera skipað fyrir verkum af erlendum stjórnvöldum. Svo ég skammaðist ekki. En ég vissulega bar upp vandamálið og hún vildi glöð ræða það,“ er haft eftir Varadkar.
Þá hafi hann sagt írsk höf vera eins konar griðastaði fyrir hvali og í kjölfarið hafi dýrunum fjölgað þar, sem sé mikilvægt fyrir líffjölbreytni og ferðamannaiðnaðinn.
„Ég vil að hvalveiðum verði hætt á heimsvísu. En við skiljum augljóslega að mismunandi ríki taka sínar eigin ákvarðanir.“