Úkraínski herinn skaut niður 37 flugskeyti Rússa og 29 dróna í nótt, samkvæmt færslu yfirmanns í hernum á samfélagsmiðlum. Þar kemur fram að alls hafi Rússar skotið 40 flugskeytum og sett 35 dróna á loft í nótt.
Í gær grandaði úkraínski flugherinn 52 af 54 drónum Rússa yfir höfuðborginni Kænugarði, í umfangsmestu drónaárás sem gerð hefur verið frá upphafi innrásarinnar. Tveir létust í árásunum í gær og að minnsta kosti þrír slösuðust.
Síðustu vikur hafa fjölmargar árásir verið gerðar á Kænugarð og virðist áhersla Rússa á að brjóta niður varnir borgarinnar, vera að aukast.