Sjálfboðaliðar í Súdan hafa jarðsett 180 lík sem enn er ekki búið að bera kennsl á síðan átökin hófust þar í landi fyrir átta vikum.
Eins og áður hefur verið greint frá brutust átökin í landinu út þann 15. apríl þegar að sveitir vígamanna gerðu tilraun til valdaráns í höfuðborginni Kartúm í Súdan. Síðan þá hafa mörg hundruð manns látið lífið og eru nærri milljón manns á flótta vegna átaka her landsins og sveita vígamanna.
Skothríðir og sprengingar hafa sett mark sitt á daginn í Kartúm í dag eins og svo oft áður síðustu vikur. Að sögn íbúa í borginni hefur loftskeytum frá orrustuþotum hersins rignt yfir borgina en herinn er undir stjórn hershöfðingjans Abdel Fattah al-Burhan. Á sama tíma sendir hershöfðingi vígamanna, Mohamed Hamdan Daglo, loftvarnarskeyti á móti loftskeytunum til að verjast.
Báðir hershöfðingjarnir hafa heitið því að standa vörð um almenna borgara en íbúar í borginni hafa tilkynnt að átökin hafi vaxið í veldisvexti eftir að það slitnaði upp úr viðræðum um vopnahlé á milli hershöfðingjanna á miðvikudaginn.