Tíu látin í rútuslysi

Lögregla í Ástralíu að störfum
Lögregla í Ástralíu að störfum AFP/Mik Tsikas

Tíu eru látin og margir eru særðir eftir rútuslys í Nýja Suður Wales í Ástralíu. Tíu voru færð á spítala. Mögulegt er að tala látinna hækki. Alls komust 18 ósködduð frá slysinu.

Bílstjórinn fór á spítala í lögreglufylgd til frekari skoðunar, líkt og reglur í Ástralíu kveða á um. Lögregla leggur nú mat á tildrög slyssins samkvæmt frétt ABC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert