Svissneski hjólreiðamaðurinn Gino Mäeder lést af sárum sínum eftir hafa fallið ofan í gil í hjólreiðakeppni í Sviss.
Félag hans, Bahrain-Victorious, tilkynnti þetta í morgun, en Mäeder keppti á efsta stigi götuhjólreiða í heiminum með liðinu, á svokallaðri alþjóðamótaröð (e. world tour).
„Hið frábæra starfsfólk á Chur-sjúkrahúsinu reyndi allt sem það gat en Gino komst því miður ekki í gegnum þetta, þessa síðustu og erfiðustu þolraun sína og klukkan 11.30 [9.30 að íslenskum tíma] kvöddum við eitt af björtustu ljósum liðsins okkar,“ sagði liðið í yfirlýsingu sinni.
The UCI is devastated to learn of the death of professional cyclist, Gino Mäder.
— UCI (@UCI_cycling) June 16, 2023
Our thoughts are with his family, friends and everyone connected with Gino who was a rising star within the professional ranks of cycling. pic.twitter.com/DFhBR4J0mK