Frá og með deginum í dag geta notendur á Twitter aðeins skoðað 300 tíst á hverjum sólarhring. Þetta á aðeins við um notendur sem eru með frían aðgang að samfélagsmiðlinum en notendur sem greiða fyrir aðgang geta skoðað 6.000 tíst á dag.
Elon Musk, eigandi Twitter, greindi frá þessu í dag og segir að um tímabundna aðgerð sé að ræða til þess að sporna við því hvernig gervigreind notar efni á Twitter.
Merkingin #GoodbyeTwitter eða #BæTwitter varð vinsæl á Twitter í Bandaríkjunum í kjölfar tilkynningar Musks.
Musk bætti við að „fljótlega“ myndu notendur sem keypt hafa aðgang að Twitter geta séð 8 þúsund tíst og almennir notendur, sem eru í miklum meirihluta, séð 800 tíst.
Hann gaf ekkert upp hversu lengi takmarkanirnar yrðu í gildi.
Það var síðast í gær sem Musk greindi frá breytingum á miðlinum, en hann sagði að það væri ekki lengur hægt að skoða tíst án þess að vera með aðgang að Twitter.
Gervigreindarfyrirtæki safna gögnum á Twitter til að byggja upp hugbúnað sinn, til dæmis spjallmenni. Er þá notast við samtöl notenda á Twitter til þess að gefa hugbúnaðinum dæmi um hvernig samtöl raunverulegs fólks fara fram.
Segir Musk að mörg hundruð fyrirtæki hafi sótt gögn á Twitter og aukið umferðina um miðilinn.