Rúmlega 100 starfsmenn skyndibitastaðarins McDonald's í Englandi hafa stigið fram og sagt frá eitraðri vinnustaðamenningu staðarins þar sem horft hafi verið framhjá kynferðisofbeldi, áreitni, kynþáttafordómum og einelti.
BBC greinir frá.
Þá hafa 17 ára gamlir starfsmenn staðarins greint frá því að á þeim hafi verið þreifað og þeir áreittir nánast reglulega. Breska jafnréttiseftirlitið hefur lýst yfir verulegum áhyggjum yfir stöðu mála.
Breski fjölmiðillinn hóf að rannsaka vinnuaðstæður McDonald's í febrúar á þessu ári eftir að fyrirtækið skrifaði undir lagalega bindandi samning við bresku jafnréttis-og mannréttindanefndina þar sem það hét því að vernda starfsfólk sitt gegn kynferðislegri áreitni.
Yfir fimm mánaða tímabil hafði BBC samband við starfsmenn McDonald's og spurðist fyrir um reynslu þeirra af starfi sínu þar. Í ljós kom, að af rúmlega 100 einstaklingum sem greindu frá því að hafa orðið fyrir áreiti á vinnustaðnum tengdust 31 kynferðisofbeldi og 78 tengdust kynferðislegri áreitni.
Í yfirlýsingu sem McDonald's sendi frá sér í kjölfar ásakanna baðst fyrirtækið innilegrar afsökunar og bætti við að allir starfsmenn keðjunnar ættu skilið að vinna á öruggum vinnustað þar sem komið væri fram við fólk af virðingu.
„Við munum rannsaka allar þær ásakanir sem okkur hafa borist. Öllum sönnuðum brotum á siðareglum okkar verður brugðist við með alvarlegustu ráðstöfunum sem við getum beitt með löglegum hætti, allt að og þar með talið uppsögn,“ sagði Alistair Macrow, framkvæmdastjóri McDonald's á Bretlandseyjum, í samtali við BBC fyrr í vikunni.