Alabama-ríki í Bandaríkjunum mun nú aftur hefja notkun á banvænum sprautum til þess að framfylgja dauðarefsingum eftir að sú aðferð var stöðvuð í fyrra vegna vandkvæða við framkvæmd.
Ríkisstjóri Alabama stöðvaði notkunina vegna vandamála sem snéru til dæmis að því að illa gekk að setja upp æðaleggi fyrir aftökuna.
Fram kemur í umfjöllun AFP að í einu tilfelli hafi tekið þrjá tíma að setja upp æðalegg og í tveimur voru aftökurnar stöðvaðar vegna svipaðra vandræða.
Greint er frá því að fyrsta aftakan skuli fara fram innan tólf klukkustunda glugga, frá fimmtudegi til föstudags í þessari viku. Þá hafi lögmenn fangans sem um ræðir áfrýjað ákvörðuninni á grundvelli fyrri vandræða með aftökur af þessu tagi.
Þrettán fangar hafa verið teknir af lífi það sem af er ári í Bandaríkjunum en ekki eru reglurnar um þær eins í öllum ríkjum. Fyrr á þessu ári var frumvarp samþykkt í Idaho-ríki sem leyfir að fangar séu teknir af lífi af aftökusveit sé gjöf banvænnar sprautu ekki möguleg. Lögin tóku gildi þann 1. júlí síðastliðinn.