Óupplýst mál í Atlantic City nú til skoðunar

Lögreglan hefur rannsakað heimili Heuermann í þonokkra daga.
Lögreglan hefur rannsakað heimili Heuermann í þonokkra daga. AFP/Michael M. Santiago

Rannsókn lögreglu á heimili og lóð Rex Heuermann og fjölskyldu hans lauk í gær. Greint er frá því að lögreglan hafi fundið mikið magn sönnunargagna sem nú þurfi að skoða og skrá. Þá sé verið að skoða hvort Heuermann gæti tengst óupplýstum málum í Atlantic City í New Jersey-ríki.

Fox greinir frá því að í kjölfar handtöku Heuermann hafi verið ákveðið að skoða óupplýst mál fjögurra kvenna sem fundust látnar í skurði í Atlantic City árið 2006 á ný. Talið er að konurnar fjórar hafi starfað sem vændiskonur líkt og talið er um konurnar fjórar sem fundust við Gilgo-strönd.

Heuermann hef­ur verið ákærður fyr­ir morðið á þrem­ur kon­um og ligg­ur und­ir grun fyr­ir eitt til viðbót­ar. Lík kvenn­anna fund­ust við Gilgo-strönd fyr­ir meira en tíu árum og hef­ur málið verið óupp­lýst síðan.

Ekki hægt að segja til um morð á heimilinu

Hann er ákærður fyr­ir morðið á Mel­issu Barthelemy sem hvarf árið 2009 sem og Meg­an Waterman og Amber Costello sem hurfu árið 2010. Þá er hann grunaður um morðið á Maureen Brainard-Barnes sem hvarf 2007. All­ar voru þær á þrítugs­aldri.

Greint hefur verið frá því að Heuermann hafi átt land í Suður-Karólínu-ríki og eignir í Las Vegas. Samkvæmt Fox virðist Heuermann hafa tengsl við borgina en einhverjir verslunarstarfsmenn hafi séð hann á svæðinu.

Hvað varðar málið við Gilgo-strönd greinir NBC news frá því að lögreglan hafi lokið rannsókn sinni á heimili Heuermann í gær og fundið mikið magn sönnunargagna sem þurfi nú að skoða og flokka. Ekki séu næg sönnunargögn fyrir hendi til þess að segja til um hvort að einhver hefði verið myrtur á heimilinu.

Á meðan á rannsókn á heimilinu stóð gróf lögreglan meðal annars upp bakgarð heimilisins í leit að sönnunargögnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert