Átökin milli stjórnarhers Súdans og RSF-sveitanna þar í landi hafa nú breiðst út til borga í suðurhluta Súdans og gætu hundruð þúsunda sem nú þegar hafa flúið átakasvæðið Darfur þurft að leita skjóls að nýju. AFP greinir frá.
Á fimmtudag brutust út blóðug átök í El Fasher, höfuðborg Norður-Darfurhéraðs, sem hefur undanfarna tvo mánuði verið að mestu laus við sprengingar, rán, nauðganir og aftökur sem átt hafa sér stað í öðrum hlutum Darfur.
600,000 manns hafa að leitað sér skjóls í El Fasher í kjölfar átakanna og hafa ýmis alþjóðleg mannréttindasamtök lýst yfir verulegum áhyggjum af ástandinu. Þá hefur verið greint frá fjöldamorðum og árásum á óbreytta borgara, sem drifin eru áfram af þjóðerniserjum.
Alþjóðaglæpadómstóllinn rannsakar nú meinta stríðsglæpi RSF sveitanna, en svæðið hefur verið þungamiðja mannskæðra bardaga síðan 2003 þegar þáverandi ríkisstjórn leysti hinn alræmda Janjaweed, forvera RSF sveitarinnar, úr haldi.