Rússneski málaliðahópurinn Wagner er búinn að vera að mati varnarmálaráðherra Úkraínu, en stofnandi hópsins, Jevgení Prigósjín, er talinn af eftir flugslys. Hópurinn sakar stjórnvöld í Rússlandi um að hafa skotið flugvélina niður. AFP-fréttastofan greinir frá.
„Það er enginn Wagner-hópur efir, en fyrir ári síðan voru þeir öflugur bardagahópur,“ sagði Oleksi Reznikov, varnarmálaaráðherra Úkraínu í samtali við þýska dagblaðið Welt am Sonntag.
„Þeir eru búnir að vera,“ sagði hann jafnframt.
Prigósjín, sem eitt sinn var bandamaður Vladimír Pútín Rússlandsforseta, fór fyrir misheppnaðri valdaránstilraun gegn Pútín í júní og hefur andað köldu milli þeirra tveggja undanfarin misseri. Varnarmálaráðherrann telur engu að síður að dauði Prigósjín veiki Pútín
Stjórnvöld í Kreml neita að hafa átt þátt í dauða Prigósjín og segja að ásakanir um ábyrgð þeirra á slysinu séu algjör lygi.