Lést eftir stunguárás í Gautaborg

Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu.
Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu. AFP/Adam IHSE/TT fréttastofa

Karlmaður á þrítugsaldri lést eftir stunguárás í Gautaborg í Svíþjóð í nótt. Fjórir hafa verið handteknir vegna málsins.

Sænska ríkisútvarpið greinir frá.

Árásin átti sér stað í íbúð í borginni í nótt. Lögreglan hefur nú hafið rannsókn vegna málsins og yfirheyrt nokkra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert