Pólsk stjórnvöld hafa lofað Úkraínumönnum að uppfylla þegar undirritaða samninga um vopnaflutninga. Loforðið kemur aðeins degi eftir að stjórnvöld í Varsjá tilkynntu að þau myndu ekki lengur senda vopn til Úkraínu og einbeita sér að eigin vörnum.
Pólland hefur verið einn dyggasti stuðningsmaður Úkraínu í kjölfar innrásar Rússlands inn í Úkraínu og hefur hingað til verið öflugur vopnabirgir fyrir úkraínska herinn. Pólland hýsir einnig um eina milljón úkraínskra flóttamanna.
„Pólland mun aðeins uppfylla fyrrum samþykkta skotfæra- og vopnaflutninga,“ sagði Piotr Muller, talsmaður pólsku ríkisstjórnarinnar, við miðilinn PAP.
Í gær sagði Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands að Pólland væri „ekki lengur að flytja vopn til Úkraínu vegna þess að við erum núna að vopna Pólland með nútímalegri vopnum“ í svari við spurningu blaðamanns í gær um hvort að Pólland myndi halda áfram að styðja Úkraínu þrátt fyrir ágreining um kornútflutning.
Spennan milli stjórnvalda í Póllandi og Úkraínu, sem stafar af banni Póllands við innflutningi á úkraínsku korni til að vernda hagsmuni bænda, hefur magnast undanfarna daga.
Evrópusambandið tilkynnti í síðustu viku að það ætlaði að binda enda á tímabundnar takmarkanir á innflutningi á úkraínsku korni til fimm landa, þar á meðal Póllands. En stjórnvöld í Póllandi sögðust ætla að halda áfram að framfylgja banninu einhliða, þvert á óskir úkraínskra stjórnvalda.
Catherina Colonna, utanríkisráðherra Frakklands, sagði fyrr í dag að ákvörðun Póllands um að banna korninnflutning frá Úkraínu væri óréttlætanleg.