Hið minnsta tuttugu létust í bensínsprengingu í Nagorno-Karabakh í gærkvöldi. Yfir tvöhundruð særðust í sprengingunni að sögn armenskra stjórnvalda.
Tæplega 300 voru lögð inn á sjúkrahús og er ástand margra enn alvarlegt. BBC greinir frá.
Í gær höfðu 14 þúsund flúið frá fjallahéraðinu yfir til Armeníu en mikill meirihluti íbúa í Nagorno-Karabakh eru af armenskum uppruna. Aserar náðu völdum í Nagorno-Karabak í síðustu viku.
Ekki er ljóst hvað olli sprengingunni í gær en hún varð í borginni Stepanakert.
Umboðsmaður mannréttinda í Nagorno-Karabakh, Gegham Stepanyan, skrifaði á samfélagsmiðlum að bensínsprengja hafi orðið í vöruhúsi.
Í tilkynningu frá stjórnvöldum í fjallahéraðinu í nótt sagði að 13 lík hefðu fundist á staðnum og að sjö aðrir hefðu látist á spítala.