Armensk stjórnvöld segja að tæpur helmingur íbúa í Nagornó-Karabak hafi flúið fjallahéraðið eftir að hersveitir Aserbaídsjans náðu völdum þar í síðustu viku.
Mikil átök hafa verið milli aðskilnaðarsinna og asersku hersveitanna í héraðinu að undanförnu en Nagornó-Karabak er landlukt hérað sem alþjóðasamfélagið viðurkennir sem hluta af Aserbaídsjan.
Mikill meirihluti íbúa í Nagornó-Karabak er aftur á móti af armenskum uppruna og hafa stjórnvöld í Jerevan nú reynt að taka á móti flóði af heimilislausum Armenum, sem hafa þurft að flýja aftur til upprunalandsins.
Samband nágrannaríkjanna Aserbaídsjan og Armeníu hefur verið stormasamt í gegnum tíðina en ríkin hafa í tvígang farið í stríð hvort gegn öðru vegna Nagornó-Karabakh. Fyrst snemma á tíunda áratugnum eftir fall Sovétríkjanna og svo aftur árið 2020.
Frá því í desember höfðu Aserar lokað einu leiðinni inn og út af svæðinu frá Armeníu, sem kallast Lachin-gangurinn, en nú hefur gangurinn verið opnaður að nýju og hafa rúmlega 50 þúsund flóttamenn flust til Armeníu síðan þá.
Um 120 þúsund banns búa í héraðinu. Nokkrir flóttamenn við landamærin sögðu við AFP-fréttaveituna að þeir hefðu verið hvattir af aðskilnaðarsinnum til að flýja land.
Um 68 manns létust í bensínsprengingu í borginni Stepanakert í Nagornó-Karabak á mánudaginn og voru tæplega 300 manns lagðir inn á spítala. Þar að auki er um 100 manns enn saknað.
Sprengingin varð þegar flóttafólk var að safna bensínbirgðum fyrir ferðina til Armeníu, en Lachin-gangurinn liggur yfir stórt fjall.