Ellefu manns hafa látist í skotárásum í Svíþjóð það sem af er september. Átján ára karlmaður var skotinn til bana í Stokkhólmi í gærkvöldi.
Innan tólf klukkustunda í gærkvöldi og nótt létust þrír í Uppsala, Stokkhólmi og Jordsbro.
Sænska ríkisútvarpið greinir frá og segir að ekki hafi fleiri látist af völdum skotvopna á einum mánuði síðan 2019.
„Það var ekki gott að vakna í morgun. Frá sjónarhorni lögreglunnar þá er mikilvægt að halda áfram að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir að svona hlutir gerist og hafi svona alvarlegar afleiðingar,“ sagði talsmaður sænsku lögreglunnar við ríkisútvarpið.
Tvö ungmenni voru skotin í Jordbro í gær og lést annað þeirra. Átján ára karlmaður var skotinn til bana í Stokkhólmi í gærkvöldi. Kona á þrítugsaldri lést svo í sprengingu í íbúðahverfi í gærkvöldi.