Lögreglan í Las Vegas í Bandaríkjunum hefur handtekið mann í tengslum við morðið á rapparanum Tupac Shakur, sem var einnig þekktur sem 2Pac.
Morðmálið hefur verið óupplýst frá árið 1996 en rapparinn lést þann 13. september í Las Vegas það ár. Þá var hann skotinn fjórum sinnum í bíl sínum þegar hann beið á rauðu ljósi. Var hann 25 ára gamall.
Shakur, sem seldi meira en 75 milljónir platna um allan heim, var tekinn inn í frægðarhöll rokksins árið 2017.
AP-fréttaveitan greinir frá því að Duane „Keffe D“ Davis hafi verið handtekinn á föstudag en eðli ákærunnar, eða ákæranna, er enn ekki ljóst.
Davis er meðlimur glæpagengisins „New York Crips“ er æskuvinur rapparans Easy-E úr rappsveitinni N.W.A.
Davis hefur lengi verið kunnugur lögregluyfirvöldum. Hann hefur jafnvel sjálfur viðurkennt, bæði í viðtölum og í ævisögu sinni, „Compton Street Legend“, að hann hafi verið í Cadillac-bílnum sem úr var skotið þegar Shakur var myrtur.
Lögreglan í Nevada-ríki í Bandaríkjunum hóf húsleit í úthverfi Las Vegas-borgar í síðasta mánuði í tengslum morðið.