Fjögur sjúkrahús í norðurhluta Gasasvæðisins eru ekki lengur starfandi að sögn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
Í yfirlýsingu frá stofnuninni segir að 21 sjúkrahús í Gasa hafi fengið skipun frá Ísraelsher um að þau þyrfti að rýma og telur stofnunin að það geti jafngilt broti á alþjóðlegum mannúðarlögum.
„Þvinguð rýming sjúkrahúsa á Gasasvæðinu setur líf viðkvæmra sjúklinga í bráða hættu, sem jafngildir dauðadómi yfir þeim sem þurfa á gjörgæslu og lífsbjörgunaraðgerðum að halda,“ segir í yfirlýsingunni.