Katrín Jakobsdóttir vekur heimsathygli

Verkfallsþáttaka forsætisráðherra vekur heimsathygli.
Verkfallsþáttaka forsætisráðherra vekur heimsathygli. Samsett mynd

Kvennaverkfallið sem verður á morgun hefur vakið heimsathygli en stærstu fjölmiðlar heims vekja sérstaka athygli á því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ætli sér að taka þátt í verkfallinu.

The New York TimesBBCCNN og fleiri fjölmiðlar vitna í viðtal hennar við mbl.is þar sem hún sagði:

„Ég mun leggja niður störf og við all­ar hér, eða ég vænti þess,“ sagði hún við blaðamann mbl.is að rík­is­stjórn­ar­fundi lokn­um á föstudaginn.

Vitnuðu í viðtal við frú Vigdísi

BBC fór svo yfir stöðu kvenna á vinnumarkaðnum á Íslandi og bendir á að jafnrétti kynjanna sé hvergi meira í heiminum en á Íslandi.

„Fyrrverandi forseti Íslands, Vigdís Finnbogadóttir, sagði við BBC árið 2015 að verkfallið 1975 væri „fyrsta skrefið í kvenfrelsi á Íslandi“, sem ruddi brautina fyrir hana til að verða fyrsta konan til að verða lýðræðislega kjörin þjóðhöfðingi í heiminum árið 1980,“ segir í frétt BBC.

Aðrir fjölmiðlar sem hafa skrifað um málið í dag eru til dæmis The Guardian, Axios og Reuters.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert