Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu en kallar eftir mannúðarhléi

Í gær hófst neyðarumræða í allsherjarþinginu vegna stríðsátakanna fyrir botni …
Í gær hófst neyðarumræða í allsherjarþinginu vegna stríðsátakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Jórdanía og Máritanía, fyrir hönd Arabaríkja og Samtaka íslamskra ríkja, óskuðu eftir umræðunni sem var fram haldið í dag. AFP/Andrea Renault

Ísland sat hjá er greidd voru atkvæði um ályktun Jórdaníu um vopnahlé á Gasa, í neyðarumræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag.

Í tilkynningu utanríkisráðuneytisins segir að Ísland hefði stutt ályktunina ef breytingartillaga Kanada, sem tók til grimmdarverka Hamas, hefði náð fram að ganga.

Nú undir kvöld voru greidd atkvæði um ályktun um ástandið sem Jórdanía, fyrir hönd ríkja Arabahópsins, hefur lagt fram og snúa mjög að mannúðarhliðinni. Því miður reyndist ómögulegt að ná samstöðu um texta ályktunarinnar sem tók ekki til grimmdarverka Hamas og tók ekki með beinum hætti á gíslatöku Hamas, en yfir 200 manns eru enn í haldi, þar af 30 börn,“ segir í tilkynningunni.

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslunni ásamt 44 öðrum ríkjum.

Afstaða Íslands skýr

Í tilkynningunni segir jafnframt að Ísland hafi komið afstöðu sinni skýrt á framfæri í atkvæðaskýringu strax að atkvæðagreiðslu lokinni.

„Ísland lagði áherslu á mannúðarhlé til að tryggja tafarlausa mannúðaraðstoð, harmaði gríðarlegt mannfall óbreyttra borgara og ítrekaði að þá yrði að vernda. Ísland kallaði eftir því að hugað yrði að pólitískri lausn deilunnar, komið verði á friði og byggt á tveggja ríkja lausninni. 

Ísland harmaði jafnframt að ekki hefði náðst samstaða á fundinum og að öryggisráðinu hefði ekki tekist að ná saman, en þrjár ályktanir hafa verið felldar í ráðinu undanfarna daga. Ályktun allsherjarþingsins er ekki bindandi eins og ályktanir öryggisráðsins,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert