Segja sex börn og níu sjúklinga hafa látist

Sjúklingar á sjúkrahúsinu Al-Shifa á föstudaginn.
Sjúklingar á sjúkrahúsinu Al-Shifa á föstudaginn. AFP/Khader Al Zanoun

Barn sem hafði fæðst fyrir tímann og tveir sjúklingar létust á sjúkrahúsinu Al-Shifa í Gasaborg, að sögn heilbrigðisráðuneytis Hamas.

Þar með hafa sex börn og níu sjúklingar á sjúkrahúsinu látist síðustu daga.

Rafmagnsskortur hefur verið á sjúkrahúsinu á sama tíma og harðir bardagar hafa geisað á milli Ísraelshers og Hamas á svæðinu.

AFP/Ismail Zanoun

Aðstæður fara sífellt versnandi fyrir mörg hundruð sjúklinga sjúkrahússins og þúsundir annarra sem hafa leitað þar skjóls vegna átakanna.

Ísraelar hafa heitið því að aðstoða við að koma börnum í burtu frá sjúkrahúsinu en það hefur þó enn ekki gerst.

Ísraelsher segir hermenn sína hafa látið sjúkrahúsið fá 300 lítra af eldsneyti til notkunar í neyðarskyni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert