Fyrirskipa rýmingu sjúkrahússins

Ísraelar segja að hryðjuverkasamtökin Hamas reki stjórnstöð undir sjúkrahúsinu.
Ísraelar segja að hryðjuverkasamtökin Hamas reki stjórnstöð undir sjúkrahúsinu. AFP/Ísraelski herinn

Ísraelsher hefur fyrirskipað rýmingu Al-Shifa sjúkrahússins á næstu klukkustund, sem er stærsta sjúkrahúsið á Gasasvæðinu.

Ísraelar segja að hryðjuverkasamtökin Hamas reki stjórnstöð undir sjúkrahúsinu.

Hermenn tilkynntu rýminguna í gegnum hátalarakerfi og höfðu auk þess samband við Mohammed Abu Salmiya sjúkrahússtjóra.

Ráðlagt að flytja sjúklinga fótgangandi

Var honum ráðlagt að flytja veika og særða fótgangandi til strandar, svo og allt heilbrigðisstarfsfólk og þá íbúa Gasa sem leitað hafa skjóls á sjúkrahúsinu. Læknar segja ómögulegt að flytja sjúklingana.

Ísraelski herinn hefur setið um sjúkrahúsið dögum saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert