Heimilislausir og lágtekjufólk í Los Angeles í Bandaríkjunum söfnuðust saman til að snæða þakkargjörðarmáltíð í Skid Row-hverfinu miðsvæðis í borginni.
„Venjulega eyði ég þakkargjörðarhátíðinni einsamall,” sagði Carlos Schmith, einn þeirra sem fengu máltíðina, sem er í boði góðgerðarsamtakanna Los Angeles Mission.