Taílenskir gíslar á ísraelsku sjúkrahúsi

Tveir taílenskir gíslar sem Hamas-samtökin slepptu úr haldi komu í morgun á ísraelskt sjúkrahús þar sem utanríkisráðherra Taílands, Parnpree Bahiddha-Nukara, tók á móti þeim.

17 gíslar til viðbótar sem voru í haldi Hamas í nokkrar vikur eru væntanlegir til Taílands á morgun, að sögn taílenska utanríkisráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert