Karlmaður sem liggur undir grun í tengslum við hvarf Madeleine McCann, sem hvarf sporlaust á Algarve í Portúgal árið 2007, verður dreginn fyrir dóm í Þýskalandi í tengslum við fimm kynferðisbrot.
Maðurinn sem um ræðir heitir Christian Brueckner, 46 ára gamall Þjóðverji. Hann hefur áður verið sakfelldur fyrir barnaníð og fíkniefnasölu.
Er Brueckner nú ákærður fyrir þrjár nauðganir og tvö kynferðisbrot gegn börnum í Portúgal á árunum 2000 til 2017. Brotin sem hann er nú ákærður fyrir tengjast ekki hvarfi stúlkunnar.
Eiga réttarhöldin að hefjast 16. febrúar.