Heilbrigðisyfirvöld á Gasa, sem er stjórnað af Hamas, greindu frá því í dag að tæplega 16 þúsund hafi látist í Palestínu í átökunum milli Ísraels og Hamas-hryðjuverkasamtakanna.
Tala látinna er 15.899 og 70% fórnarlambanna eru konur og börn. Þá eru 42 þúsund særðir en stríðið braust út þann 7. október þegar vígamenn Hamas réðust inn í suðurhluta Ísraels og drápu 1.200 manns.
Mikið mannfall hefur verið á Gasasvæðinu síðustu daga eftir að vikulöngu vopnahléi lauk þann 1. desember.