Undirhershöfðingi Rússa lét lífið í Úkraínu. Orsökin er enn óljós, en samkvæmt heimildum AFP-fréttaveitunnar á Vladimir Zavadsky, undirhershöfðinginn að hafa stigið á jarðsprengju.
Þá segja sömu heimildir að jarðsprengjan hafi verið fjarri framvarðalínu átakanna og því mögulega verið sett niður af rússneskum hermönnum.
„Harmi sleginn. Undirhershöfðinginn Vladimir Zavadsky, skipaður yfirmaður 14. herdeildar Norðurflotans, lét lífið við störf,“ sagði landstjóri Voronezh, Alexander Gustav, á samskiptamiðlinum Telegram.
Þá gaf hann ekki upp orsök dauðans.