Rússnesk táningsstúlka skaut til bana bekkjarsystkini sitt og særði fimm til viðbótar áður hún svipti sig lífi.
Árásin var gerð í skóla í Brjansk í Rússlandi, skammt frá landamærunum að Úkraínu.
„Fjórtán ára stúlka tók með sér haglabyssu í skólann sem hún notaði til að skjóta bekkjarfélaga sína. Tveir létust, annar var skotárásarmaðurinn – og eru fimm særðir til viðbótar,“ sagði í yfirlýsingu rannsóknarnefndar.