Danski þingmaðurinn Mike Villa Fonseca hefur framlengt veikindaleyfi sitt. Danski fjölmiðillinn BT greinir frá.
Fonseca fór í veikindaleyfi frá þinginu þann 17. nóvember eftir að upp komst um samband hans við 15 ára gamla stúlku. Hann er sjálfur 28 ára. Upphaflega ætlaði hann sér að snúa aftur á þingið eftir þrjár vikur.
Fonseca var gert að víkja úr stjórnmálaflokki sínum, Moderaterne, þar sem samband hans við stúlkuna brýtur gegn siðareglum flokksins. Er hann snýr aftur á þing verður hann því þingmaður utan flokka, en aðrir stjórnmálaflokkar hafa ekki viljað fá Fonseca í þingmannahóp sinn.