Frönsk freigáta skaut niður tvo dróna á Rauðahafi í gærkvöldi. Drónarnir voru á leið að skipinu frá strönd Jemen að sögn franska hersins.
Freigátan, Languedoc, starfar á Rauðahafinu og skaut niður drónana í gærkvöldi um 110 kílómetra frá ströndu Jemen.
Húta-uppreisnarmenn, sem studdir eru af Írönum og stjórna svæði í Jemen, hótuðu í gær að ráðast á öll skip sem væru á leið að ísraelskum höfnum, nema þau hefðu að geyma nauðsynjar sem ætti að flytja á Gasasvæðið.
Aukin spenna er á Rauðhafinu í kjölfar árása Húta á hafsvæðinu eftir að stríð Ísrael og hryðjuverkasamtakanna Hamas hófst. Húta hafa nýlega gert árásir á skip sem hafa bein tengsl við Ísrael. Hamas hafa fagnað ákvörðuninni.
Fyrir viku skaut bandaríski tundurspillirinn USS Carney niður þrjá dróna sem tóku á loft frá þeim hluta Jemen sem eru undir stjórn Húta.
Interception dans la soirée de deux drones en provenance du Yémen par la FREMM Languedoc en mer Rouge. pic.twitter.com/2cug1Sn48C
— Armée française - Opérations militaires (@EtatMajorFR) December 9, 2023