Filippseyingar segja skip kínversku landhelgisgæslunnar hafa vísvitandi veist að filippseyskum bát nálægt margumdeildum eyjaklasa í Suður-Kínahafi í dag. Svipaður árekstur varð á svæðinu fyrir skömmu en stjórnvöld í báðum löndum slá sökinni upp á hvor önnur.
Filippseyjamenn voru að flytja vörur til setuliðs á hinu umdeilda Ayungin-rifi, eða the Second Thomas Shoal, í Spratly-eyjaklasanum þegar bátarnir rákust á.
Áreksturinn gerðist aðeins einum degi eftir að stjórnvöld í Manila höfðu sakað kínversku landhelgisgæsluna um að nota vatnsbyssur til þess að „hindra“ ferðir þriggja báta filippseyska ríkisins sem ætluðu að flytja birgðir til filippseyskra sjómanna nálægt eyjaklasanum Scarborough Shoal í Suður-kínahafi.
Filippseyingar hafa um árabil staðið í deilum við Kínverja um yfirráð í Suður-Kínahafi. Kína krefst yfirráða yfir nær öllu hafsvæðinu en Filippseyingar telja eyjaklasann vel innan 200 mílna efnahagslögsögu sinnar. Spenna hefur aukist í sambandi Filippseyja og Kína á síðustu mánuðum, þar sem tveir svipaðir árekstrar hafa orðið á svæðinu í ár.
Alþjóðagerðardómurinn í Haag úrskurðaði árið 2016 að kröfur Kínverja um yfirráð á svæðinu ættu sér engin sagnfræðileg rök. Kínverjar gefa dómnum lítinn gaum og er þeim mikið í mun að sýna fram á styrk sinn í Suður-Kínahafi, t.a.m. með viðveru eftirlitsbáta og uppbyggingu á tilbúnum eyju.
Filippseysk stjórnvöld segja í tilkynningu að „kínverska landhelgisgæslan og kínverski sjóherinn áreittu, hindruðu og framkvæmdu háskalega aðgerð gegn filippseysku flutningaskipi“.
Kínverskt skip hafi einnig valdið „umtalsverðu tjóni“ á vél skips filippseysku landhelgisgæslunnar, þegar vatni hafi verið sprautað á það.