Minnst sautján slösuðust þegar tvær lestir lentu saman í norðausturhluta Ítalíu í kvöld. Enginn er talinn vera alvarlega slasaður.
Lestirnar lentu saman á línunni milli borganna Bologna og Rimini.
Ítalska slökkviliðið greindi frá atvikinu á samfélagsmiðlinum X í kvöld. Þar kemur fram að björgunaraðgerðum sé nú lokið.
❌ Urto Frecciarossa e treno regionale sulla linea Bologna-Rimini: concluse le operazioni di soccorso, prosegue il lavoro dei #vigilidelfuoco con la messa in sicurezza dell’area insieme al personale ferroviario [#10dicembre 21:30] pic.twitter.com/kWVHov2RWN
— Vigili del Fuoco (@vigilidelfuoco) December 10, 2023