Blaðamannafundur leiðtoga Norðurlandanna ásamt Volodimír Selenskí Úkraínuforseta í Ósló hefst klukkan 12.15.
Fylgjast má með beinu streymi frá fundinum hér á mbl.is.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun einnig eiga tvíhliða fund með Selenskí í dag.
Gestgjafi fundar leiðtoga Norðurlandanna og Selenskí er Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs. Aðrir þátttakendur eru Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, Sauli Niinistö, forseti Finnlands, og Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar.