Fimm ísraleskir hermenn létu lífið

Fimm ísraelskir hermenn hafa fallið síðan í gær.
Fimm ísraelskir hermenn hafa fallið síðan í gær. Jack Guez

Fimm ísraelskir hermenn hafi látið lífið í átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs síðan í gær. Þetta tilkynnti Ísraelsher í dag.

201 Palestínumaður hefur látið lífið í átökunum á undanförnum sólarhring og eru flestir hinna látnu konur og börn, að því er heilbrigðisyfirvöld á Gasasvæðinu tilkynntu fyrr í dag.

Hryðjuverkasamtökin Hamas segjast ekki munu leysa fleiri gísla úr haldi fyrr en Ísrael samþykkir að binda enda á stíðið.

Stríðið hófst með árásum Hamas á Ísrael í október á þessu ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert