20% af Svartahafsflota Rússa eyðilögð á 4 mánuðum

Rússneskt herskip á Svartahafi.
Rússneskt herskip á Svartahafi. AFP

Varnarmálaráðherra Bretlands vekur athygli á því að 20 prósent Svartahafsflota Rússa hafi verið eyðilögð á síðustu fjórum mánuðum.

Frá þessu greinir ráðherrann í færslu á samfélagsmiðlinum X í kjölfar þess að Úkraínumenn eyðilögðu skipið Nóvótsérkassk í Feódósíu á Krímskaga í nótt.

„Þessi nýjasta eyðilegging á sjóher Pútíns sýnir að þeir sem trúa því að það sé pattstaða í Úkraínustríðinu hafa rangt fyrir sér!

Þeir hafa ekki tekið eftir því að undanfarna fjóra mánuði hafa 20 prósent af Svartahafsflota Rússa verið eyðilögð,“ skrifar Grant Shapps varnarmálaráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert