Flugvélaframleiðandinn Boeing biður flugfélög um að láta skoða allar vélar af tegundinni 737 Max vegna möguleika á lausum skrúfbolta í stýrikerfinu.
Beiðnin kemur í kjölfar þess að laus skrúfbolti fannst í kerfi einnar vélar, að sögn flugmálastjórnar Bretlands. Breska ríkisútvarpið greinir frá.
„Vandamálið var greint á tiltekinni flugvél og hefur verið lagað,“ sagði Boeing í yfirlýsingu. Flugmálastjórn Bretlands segist fylgjast „grannt með skoðunum á Boeing 737 Max flugvélum til þess að finna hugsanlegan skrúfbolta í stýrikerfinu“.
Boeing mælir með að skoðanir, sem taka ekki lengri tíma en tvær klukkustundir, verði framkvæmdar á næstu tveimur vikum. Að sögn Boeing skoða áhafnir flugvéla reglulega stýrikerfið fyrir flugtak.
Anthony Brickhouse, sérfræðingur í loftöryggi, segir við fréttastofuna Reuters að flugfélög þurfi að líta málið alvarlegum augum en að farþegar þurfi ekki að hafa áhyggjur af lausum skrúfboltum.
Hlutabréfaverð Boeing lækkaði um 1% í dag.
Flugvélar af tegundinni 737 Max máttu fljúga á nýjan leik í Bandaríkjunum árið 2020 eftir að þær höfðu verið kyrrsettar í 20 mánuði vegna tveggja mannskæðra slysa.