Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, hefur staðfest að fimm manns hafi farist eftir flugslys þar sem flugvél Japan Airlines lenti í árekstri við flugvél japönsku strandgæslunnar á Haneda-flugvellinum í Tókýó. Þau sem létust voru um borð í flugvél strandgæslunnar. Flugmaður vélarinnar er sá eini sem komst lífs af en hann er talinn alvarlega slasaður.
Haneda-flugvellinum, sem er fjölfarnasti flugvöllur Japans, hefur verið lokað og flugvélum vísað á aðra flugvelli á meðan viðbragðsaðilar ná tökum á eldinum. Samgönguráðherra Japans vonast til þess að flugvöllurinn geti opnað aftur á morgun eða jafnvel seinna í dag.
Myndbönd af atvikinu sýna slökkviliðsmenn berjast við mikinn eld á flugvélinni en viðbragsaðilar þurftu meira en 70 slökkviliðsbíla til að berjast við eldinn. Bjarga tókst öllum 379 farþegum og áhöfn Japan Airlines áður en flugvélin varð alelda og skrokkurinn hrundi.