Bandaríkjamenn gerðu aðra árás á Húta

Þetta er önnur árás Bandaríkjanna á skotmörk Húta á tveimur …
Þetta er önnur árás Bandaríkjanna á skotmörk Húta á tveimur dögum. AFP/Mohammed Huwais

Banda­rík­in gerðu aðra árás í nótt á skot­mark upp­reisn­ar­manna Húta í Jemen. Hút­ar segja að eng­in meiðsli hafi orðið og heita því að svara árás­un­um með því að halda sín­um eig­in árás­um áfram á flutn­inga­skip á Rauðahaf­inu.

Banda­rík­in og Bret­land gerður árás á skot­mörk víðs veg­ar um Jemen í fyrra­dag og var árás­in í nótt fram­hald af aðgerðum þeirra á til­tekið skot­mark. Í árás­un­um í fyrra­dag voru 5 upp­reisn­ar­menn felld­ir.

Fjöl­miðill á snær­um Húta grein­ir frá því að Al-Dailami flug­völl­ur­inn í Sanaa, höfuðborg upp­reisn­ar­mann­anna, hafi orðið fyr­ir tjóni í þess­ari árás.

Hút­ar er hóp­ur stríðsmanna sem studd­ur er af klerka­stjórn­inni í Íran. Hút­ar ráða nú yfir stór­um hluta Jemen. Á síðustu vik­um og mánuðum hef­ur upp­reisn­ar­hóp­ur­inn ít­rekað ráðist á flutn­inga­skip á Rauðahafi bæði með eld­flaug­um og drón­um.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert