Stjórnvöld í Kreml segja Úkraínumenn hafa skotið niður flutningavél rússneska hersins í grimmdarlegri árás.
Dimitrí Peskov, talsmaður stjórnvalda í Kreml, segir að enginn geti sagt til um hvaða áhrif atvikið hafi á fangaskiptaáætlun.
Um borð í flutningavél rússneska hersins voru meðal annars 65 úkraínskir fangar sem ráðgert var að leysa úr haldi og fá í skiptum fyrir rússneska fanga í Úkraínu. 74 létu lífið þegar vélin féll til jarðar, þar af allir 65 fangarnir.
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur sagt yfirvöld í Rússlandi „leika sér að úkraínskum föngum“.