Lýsa yfir neyðarástandi út af eiturlyfjafaraldri

Ríkisstjórinn Tina Kotek hefur lýst yfir neyðarástandi vegna fentanýl-krísunnar.
Ríkisstjórinn Tina Kotek hefur lýst yfir neyðarástandi vegna fentanýl-krísunnar. Ljósmynd/Þjóðvarðarlið Oregon

Ríkisstjóri Oregon-ríkis og borgarstjóri Portlands hafa lýst yfir 90 daga neyðarástandi vegna öldu dauðsfalla í Portland af völdum fentanýl-notkunar.

„Landið okkar og ríki okkar hafa aldrei séð eiturlyf jafn banvænt og ávanabindandi og allir eru að glíma við það hvernig eigi að bregðast við,“ sagði ríkisstjórinn Tina Kotek í tilkynningu.

CNN greinir frá.

Árið 2020 varð Oregon fyrsta ríkið í Bandaríkjunum til að afglæpavæða fíkniefni. Í kjölfar þess hefur neysla fíkniefna aukist og dauðsföllum af völdum of stórra skammta fjölgað.

Árið 2019 voru dauðsföll af völdum ópíóðaneyslu 280 talsins í Oregon en árið 2022 voru þau orðin 956.

Tryggir betra samstarf hjá hinu opinbera

Kotek segir að með því að lýsa yfir neyðarástandi verði hægt að tryggja betra samstarf á milli aðila til að finna einhverja lausn á þessu risavaxna vandamáli.

Að lýsa yfir neyðarástandi gerir borginni, ríkinu og sýslunni kleift að úthluta fjármagni til viðbragða við eiturlyfjafaraldrinum og koma upp stjórnstöð í miðborginni.

Verður aukin áhersla lögð á að ná til fíkla, koma þeim í meðferð og tryggja þeim húsakost.

Eins og greint hefur verið frá þá hafa ríkisþing­menn Demókrata í Or­egon boðað nýtt frum­varp sem myndi gera vörslu lít­ils magns fíkni­efna aft­ur að minni­hátt­ar af­broti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert