Karl Bretakonungur eyddi nóttinni á heimili sínu eftir að hafa byrjað krabbameinsmeðferð sína.
BBC greinir frá þessu.
Þar kemur einnig fram að Harry Bretaprins muni að öllum líkindum fljúga einn til að hitta föður sinn á næstu dögum. Eiginkonan hans Meghan verður eftir í Bandaríkjunum með börnunum þeirra tveimur, Archie og Lilibet.
Bresku blöðin fjalla ítarlega um krabbamein Karls. Fram kemur í frétt The Mirror að greiningin sé „áfall”.
The Guardian segir að Karl muni ekki koma fram opinberlega á meðan á meðferðinni stendur en haldi áfram að sinna konunglegum skyldum sínum eins og segir til um í stjórnarskránni.
Ekki hefur verið greint frá því hvers konar krabbamein konungurinn greindist með.