Það að Svíar hafi gengið til liðs við Atlantshafsbandalagið, NATO, sýnir að Vladimír Pútín Rússlandsforseta „mistókst” að veikja bandalagið með hernaði sínum í Úkraínu.
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, greindi frá þessu í morgun.
Hann sagði innrás Rússa í Úkraínu ekki einungis hafa ýtt Svíþjóð og Finnlandi, sem áður voru utan NATO, undir regnhlíf bandalagsins, heldur væri Úkraína núna „nær aðild að NATO en nokkru sinni fyrr”.
Finnland og Svíþjóð báðu um inngöngu í bandalagið eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022.
„Þegar Pútín forseti hóf innrás sína fyrir tveimur árum vildi hann draga úr vægi NATO og öðlast meiri stjórn á nágrönnum sínum. Hann vildi eyðileggja Úkraínu sem fullvalda ríki en mistókst ætlunarverk sitt,” sagði Stoltenberg og bætti við að NATO væri orðið bæði stærra og sterkara en áður.